Sumarið var alltaf mikil áskorun fyrir mig hér áður fyrr, óhollar grillveislur, sumarpartý, hvítvín eftir vinnu á Austurvelli og ég veit ekki hvað. Allt virtist vinna á móti heilbrigðum lífsstíl um leið og sólin kom fram – eða það var að minnsta kosti mín hugsun og ég leyfði því að verða að mínum sannleika. Þegar sumarið var búið var ég dottin í sukk og hreyfingarleysi og sat oftar en ekki með auka fimm kíló á líkamanum, bjúg og mikið svekkelsi yfir því að hafa misst svona tökin.

Í dag hef ég breytt hugarfarinu gagnvart þessari yndislegu árstíð og er staðráðin í að njóta veðurblíðunar og sumarsins á annan hátt en áður, með útiveru, daglegri hreyfingu og með nærandi og ferska fæðu við höndina.

Það tók mig nokkur ár að átta mig á að lífstíllinn þinn fer ekki í sumarfrí, því þá ertu ennþá föst í landi megrunarkúra, átaka og „ég byrja á mánudaginn” hugarfari. Ég hvet þig til að vera með mér í að taka sumarið með krafti og setja heilsuna og hreyfinguna í forgang, og njóta þannig alls þess besta sem þessi árstíð hefur uppá að bjóða!

Mig langar því að deila með þér nokkrum hugmyndum um hvernig þú getur notið náttúrunnar, virkjað með þér fjölskylduna í heilbrigðum leik og hvernig þú getur hreyft þig meira án þess að taka heilu eða hálfu dagana í ræktinni frá fjölskyldusamveru og góða veðrinu í sumar!

 

 

 

1. Tökum eina snögga heimaæfingu!

HiiTFiT æfing

Þessi er barnvæn, og ekki miklar líkur á að þú sparkir í höfuðið á neinum. Fullkomin að gera heima í stofunni í sumar eða úti í garði með fjölskyldunni! Passaðu bara uppá fyrstu æfinguna og að það gerist ekki það sem gerðist fyrir mig 😉 

Við keyrum hverja æfingu í 40 sekúndur og tökum svo 10 sek í hvíld á milli æfinga!

  1. Öfugar burpees
  2. Súperman 2,0
  3. Hliðarlunges
  4. Hnébeygjuhopp með tappi í miðjunni
  5. Axlararmbeygjur

Þú getur ákveðið að keyra æfinguna alla einu sinni í gegn, tekið annan hring, þrjá hringi eða þess vegna fjóra!

2.  Nýtum fallegar gönguleiðir í náttúrunni!

Af hverju að puða á hlaupabretti fyrir framan sjónvarpsskjá þegar þú getur notið fallegu náttúrunnar handan við hornið? Þú getur tekið fjölskylduna með þér í lengri dagsferð en þú getur líka ákveðið að nota fjallshlíðina sem þitt hlaupabretti þegar þú hefur tíma til og við mælum sérstaklega með því að njóta kvöldsólarinnar og kyrrðarinnar í einhverri fjallshlíðinni.

Þá gæti verið sniðugt að ákveða að taka reglulega sömu leiðina, hafa ákveðinn stað sem viðmið, til dæmis einhvern stein, vörðu eða tré, sem þú gengur upp að hverju sinni og tekur tímann. Þannig geturðu fylgst með bætingu á tímanum eins og þú værir að gera ef þú reglulega myndir hlaupa sömu vegalengdina. Úlfarsfellið og Esjuhlíðin eru til dæmis frábærir staðir til að byrja á ef þú ert á höfuðborgarsvæðinu en annars geturðu fundið ótal skemmtilegar gönguleiðir út um allt land á síðunni gonguleidir.is.

 

3. Hreyfum okkur með börnunum

Það þarf ekki alltaf að vera annaðhvort eða! Það að hlaupa í skemmtilegan leik með börnunum okkar og gefa þetta litla extra í orkunni getur náð púlsinum vel upp og virkað sem æfing þess dags! Fyrir utan hvað það gefur litlum manneskjum ótrúlega gleði að fá stóran til að leika með! Finnum barnið innra með okkur og gefum því aðeins lausan tauminn!

 

 

Hugmyndir að góðri hreyfingu með krökkunum getur verið:

  • Trampólínhopp og skopp
  • Sund – farðu endilega með í rennibrautina!
  • Boltaleikir – hvaða boltaleikir sem er – svo lengi sem þú hleypur á eftir boltanum og ert ekki bara í marki!
  • Hjól – farið í hjólareiðatúr! Ákveðið að einhvern hluta leiðarinnar á að hjóla svakalega hratt og ekki stoppa fyrr en á fyrirframákveðnum áningastað!
  • Útileikir – hvaða útileikir sem er! Mannstu eftir einni krónu og skotbolta? Klassískur eltingarleikur ætti heldur ekki að láta púlsinn ósnertan!

 

4. Finnum litlu leiðirnar til þess að koma auka hreyfingu inn í daginn

  • Taktu stigann í staðinn fyrir lyftuna
  • Leggðu bílnum viljandi langt frá búðinni og labbaðu
  • Haltu á vörunum þínum í stað þess að nota kerru ef þú getur
  • Stattu upp á klukkutíma fresti eða fáðu þér skrifborð sem þú getur hækkað og staðið við öðru hverju
  • Stilltu vekjaraklukkuna í símanum þínum til þess að minna þig á að standa upp reglulega og ná þér í vatn eða aðeins að teygja úr þér. 
  • Notaðu heyrnartól og taktu göngu fundi og símtöl standandi eða gangandi
  • Minnkaðu sjónvarpsgláp á kvöldin og gerðu frekar teygjur eða hreyfðu þig. Ef þú vilt alls ekki missa af uppáhaldsþættinum geturðu jafnvel teygt aðeins á meðan.
  • Minnkaðu setuna yfir höfuð, þegar þú ert að bíða eftir tannlækni/lækni, afgreiðslu í banka, bílvélavirkjanum eða hverjum sem er, hugsaðu þá fyrst hvort þú þurfir að setjast niður svona rétt á meðan – „get ég mögulega staðið á meðan eða nýtt tímann og gengið aðeins um meðan ég bíð?”. Ef þú ert í mjög miklu stuði, gerðu þá kálfalyftur á staðnum og nokkrar hnébeygjur. Þú dreifir í leiðinni pottþétt örlítilli gleði til viðstaddra með uppátækinu 🙂

 

5. Notum skrefamæli eða heilsuúr

Eignastu heilsuúr sem heldur tölu á skrefafjöldanum þínum yfir daginn og settu þér markmið um að ná að minnsta kosti 10.000 skrefum á dag (sem er viðmið WHO) eða að vera ákveðið virk á hverjum degi. Það getur verið ótrúlega hvetjandi að fylgjast með úrinu yfir daginn til þess að átta sig á því hversu virkur maður er á degi hverjum og hef ég heyrt margar sögur um kvöldhreyfingu sem varð að veruleika til þess að uppfylla skrefakvóta dagsins.

 

6. Virkjaðu vinkonurnar þínar í hreyfingu eða eignast nýjar heilsuvinkonur

Það er alltaf skemmtilegt að tilheyra hóp eða upplifa hvatningu frá umhverfinu. Þessa daganna er lítið um námskeið, en það er alltaf hægt að finna lausnir. Taktu þátt í lifandi samfélagi þar sem við hreyfum okkur heima eða virkjaðu vinkonur þínar með í heimaæfingar. 

Besti tíminn til þess að byrja að sinna líkama og heilsu er NÚNA, ekki seinna. Þú átt skilið að líða vel í dag, vera orkumikil og finna fyrir líkamlegu hreysti og vellíðan, og það er eitthvað sem þú getur skapað á mjög stuttum tíma.

Settu þér markmið í sumar að halda hreyfingunni inni í þínu daglega lífi – það þarf hvorki að vera flókið eða taka mikinn tíma frá öðrum mikilvægum hlutum.

 

Ef þú vilt fá stuðning og stuð þá hvet ég þig til að setja heilsuna í forgang og vera með okkur í Valkyrjunum á næstu mánuðum

 

Nýttu þér síðustu daga tilboðsins þar sem þú færð fyrsta mánuðinn í Valkyrjusamfélaginu á AÐEINS 6.900 kr. með afsláttarkóðanum: 6900

Ef þú ert með einhverjar spurningar, ekki hika við að senda okkur línu á netfangið hiitfit@hiitfit.is

 

Smelltu hér til þess að tryggja þér tilboðið