Er ekki flestum sem finnst frábært að gæða sér á góðum ís þegar sólin lætur sjá sig? Mikið af ís sem er í boði er þó stútfullur af sykri og fer oft ekki sérstaklega vel í maga.
Því er æðislegt að geta gripið í hollan og frískandi íspinna úr frystinum heima sem ótrúlega einfalt er að gera!
Innihald:
- 1 bolli haframjólk
- 2-3 msk rjómi (val)
- 1 bolli frosin jarðaber – eða fersk ef þú átt þau til
- 2 bananar
- 1-2 msk hnetusmjör/möndlusmjör
Aðferð:
- Allt er sett í blandara eða matvinnsluvél og mixað vel saman! Blöndunni er hellt í íspinnaform sem er svo sett í frystinn.
Þú getur svo aðlagað uppskriftina að þínu uppáhaldi eða því sem þú átt til heima! Þetta þarf nefnilega ekki að vera flókið! Þú getur notað aðra ávexti, haft nokkra ávaxtabita í ísnum, notað aðra hnetumjólk, jafnvel bætt smá kakói við, kókosmjöli, hnetum eða bara hverju því sem þér dettur í hug!
Njóttu svo íssins og gefðu börnunum með þér! Ekkert vera að bíða eftir sólinni – ísinn er líka frábær á rigningardegi 🙂
Á þennan hátt gefurðu þér og þeim gleðina af ís án alls viðbætta hvíta sykursins!
Viltu fleiri hollar og góðar sumaruppskriftir?
Smelltu hér til að vera með í Valkyrjusamfélaginu!