Ég skapaði Valkyrjurnar svo þú gætir náð þínum markmiðum á raunhæfan hátt. Ég veit að tíminn er oft naumur en það þarf ekki að taka langan tíma á degi hverjum að hugsa vel um heilsuna. Valkyrjusamfélagið heldur þér svo við efnið og kemur þér enn lengra og ég trúi því með öllu hjarta að ef þú skuldbindur þig til þess að gera vinnuna og gefst ekki upp, muntu finna þína lausn að heilbrigðum lífsstíl sem þú elskar – þú leggur ekki í langt ferðalag ein og stuðningslaus.
Grillaður kjúklingur með mozzarella og avókadó
Að halda grillveislu þarf ekki að þýða flæðandi feitar sósur, hálfbrenndar pylsur, sveitta hamborgara eða aðra óhollustu. Það eru svo ótal hollir valkostir þegar kemur að því að velja matinn á grillið og hollustan þarf heldur ekki að vera tímafrek! Það tekur eingöngu um 40 mínútur að henda í þessa frábæru máltíð!
read moreValkyrjan: Nálgast fyrri styrk eftir brjósklosaðgerð
Katrín Waagfjörð eyðir miklum tíma í eldhúsinu við að prófa að elda nýja holla rétti eða gera uppáhaldsréttina sína aðeins hollari en annars hefur hún mikinn áhuga á útivist og öllu því sem tengist heilsu og hollustu. Hún er þó ekki að stíga sín fyrstu skref í...
read moreValkyrjan: Gott skipulag kemur manni lengra
Þorbjörg Kristjánsdóttir, Valkyrja þessarar viku, er með hárgreiðslustofu í Vík og starfar einnig við heimaþjónustu þar sem hún býr í Mýrdalnum. Hún nýtur þess að slappa af með fjölskyldunni en hún er í sambúð og á einn sjö ára son. Á milli þess sem hún hefur hendur í...
read more18 skemmtilegar hugmyndir að hreyfingu án þess að stíga fæti inní ræktina..
Sumarið var alltaf mikil áskorun fyrir mig hér áður fyrr, óhollar grillveislur, sumarpartý, hvítvín eftir vinnu á Austurvelli og ég veit ekki hvað. Allt virtist vinna á móti heilbrigðum lífsstíl um leið og sólin kom fram - eða það var að minnsta kosti mín...
read moreValkyrjan: Mikilvægast að elska líkamann sinn
Fríða Guðný Birgisdóttir er 33 ára læknir sem elskar að syngja. Þessa mánuðina er hún í fæðingarorlofi með átta mánaða dóttur sinni en fyrir á hún aðra þriggja ára. Eftir tvö ár mun Fríða ljúka sérnámi í heimilislækningum en nú stendur hún í ströngu við að undirbúa...
read moreValkyrjan: Frá þunglyndi í framboð
Sigurrós Sandra Bergvinsdóttir elskar góða sjónvarpsþætti og kýs oftar en ekki þægindarammann heimavið til afslöppunar þar sem henni finnst yndislegt að njóta tíma með fjölskyldunni og föndra. Sigurrós Sandra, sem er 33 ára, er fædd og uppalin á Grundarfirði og eftir...
read moreEr kexpakkinn nestið í sumar? Hér eru 5 hollari hugmyndir..
Í síðustu viku deildum við nokkrum skipulags og undirbúnings hollráðum sem gott er að hafa í huga fyrir ferðalögin í sumar, ef þú misstir af því þá getur þú lesið um það hér. Í dag langar okkur hins vegar að sýna þér hvað það getur í raun og veru verið...
read moreValkyrjan: Æfir burpees á fjallstindum Dalvíkur
Í yndislega fjölskylduvænu umhverfi á Dalvík býr Hanna Kristín, nýjasta Valkyrja vikunnar. Hún er 33 ára, á tvö börn - sjö og níu ára - og einn eiginmann til bráðum tveggja ára. Hanna Kristín vinnur í fjölbreyttu starfi hjá Frystihúsi Samherja á Dalvík þar sem hún er...
read moreSparaðu tíma! 5 hollráð fyrir ferðlögin í sumar
Margt hefur verið í gangi bakvið tjöldin hjá HiiTFiT síðustu vikurnar, en við vorum að stækka og fá til liðs við okkur nýjan fjölskyldumeðlim. Hún heitir María Lind og mun m.a. hjálpa mér við að skrifa fréttabréfin til þín og svara öllum þínum spurningum....
read more